Kólguvað 7 – Endurnýjun á flötu þaki – ljósmynd 1

Flatt þak fjölbýlishúss í Norðlingaholti endurbyggt með nýjum vatnshalla, borðaklæðningu og tveggja laga pappa undir yfirbyggingu.

Á þaki fjölbýlishússins að Kólguvaði 7 safnaðist vatn fyrir, enda hafði ítrekað verið reynt að leiðrétta halla með floti milli pappalaga. Húsfélagið bauð verkið út með aðstoð verkfræðistofunnar Verksýnar og var Bygging og Viðhald falið verkið.

Áður en rif hófst var reist tímabundin yfirbygging með segldúk svo þakið væri varið fyrir veðri allan framkvæmdatímann. Eldri pappi og flot voru fjarlægð, sniðskorinn þakburðarviður festur á sperrur til að fá réttan og samfelldan halla að niðurföllum, og ný borðaklæðning lögð. Ofan á kom tveggja laga ábræddur þakpappi sem bræddur var upp á kanta og veggi, nýjar álflasningar, áfellur við rennur og öndunartúður. Þakrennur voru einnig endurnýjaðar.

Framkvæmdir hófust um miðjan júlí 2026 og var þakinu lokað í ágúst. Niðurstaðan er þétt þak með réttum vatnshalla.

Um verkið

  • Staðsetning: Kólguvað 7, Reykjavík
  • Verktími: júlí–ágúst 2026
  • Verkkaupi: Húsfélag
  • Umfang: ca. 130 m² flatt þak
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Tímabundin yfirbygging með segldúk yfir þakið á framkvæmdatíma
  • Rif og förgun á allt að fjórum lögum af eldri þakpappa og floti
  • Sniðskorinn þakburðarviður settur á sperrur til að endurmóta vatnshalla
  • Ný borðaklæðning (1″×6″) á þakflötinn
  • Tvö lög af ábræddum þakpappa brædd upp á kanta og veggi
  • Nýjar álflasningar, áfellur við rennur, öndunartúður og þakrennur

Efni

  • Danosa POLYDAN tveggja laga þakpappi
  • Álflasningar 2 mm og áfellur 1 mm
  • Borðaklæðning úr furu

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →