Nýtt þak á Skeifunni 11c og múrviðgerðir og málun á 11b og 11c fyrir húsfélag atvinnuhúsnæðis.
Skeifan 11 er atvinnuhúsnæði í Reykjavík. Húsfélagið efndi til verðkönnunar vorið 2025 undir stjórn verkfræðistofu og samdi við Byggingu og Viðhald um þakskipti, múrviðgerðir og málun á húsum 11b og 11c.
Á Skeifunni 11c var um 550 m² þakklæðning og pappi rifin, lagður nýr öndunardúkur og tvöföld lektun og þakið klætt nýju járni. Þakkantur var endurnýjaður og klæddur nýrri trapisuklæðningu, settar nýjar rennur, dropasvunta, kjöljárn og túður. Að ósk húsfélagsins bættust við snjógildrur og hitaþráður.
Samhliða var gert við múr: kanta, vatnshalla undir gluggum, sprungur og ryðpunkta, og gafl filtaður. Að lokum voru steinfletir málaðir og gluggar og hurðir endurmáluð. Framkvæmdir stóðu frá júní til september 2025 og voru framvindur samþykktar mánaðarlega af eftirliti.
Um verkið
- Staðsetning: Skeifan 11b og 11c, Reykjavík
- Verktími: júní–september 2025
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 550 m² þak og um 600 m² málaðir steinfletir
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Rif á þakklæðningu og pappa (um 550 m²) á Skeifunni 11c
- Nýr öndunardúkur, tvöföld lektun og nýtt þakjárn
- Nýr þakkantur, trapisuklæðning, dropasvunta, rennur og kjöljárn
- Snjógildrur og hitaþráður í rennur
- Múr- og sprunguviðgerðir, viðgerðir á ryðpunktum og filtun gafls
- Málun steinflata og endurmálun glugga og hurða
Efni
- Bárujárn
- Öndunardúkur
- Lektur 21×45 og 34×70
- Trapisuklæðning

