Þakskipti á tveimur samliggjandi fjölbýlishúsum í Vesturbæ – brött þök með fjölda þakglugga, kvistum og innfelldum svölum.
Rekagrandi 6–8 og Seilugrandi 1–3 eru sambærileg fjölbýlishús í Vesturbæ Reykjavíkur með bröttum bárujárnsþökum. Þökin voru komin til ára sinna og á Rekagranda hafði raki leitað inn í íbúðir.
Framkvæmdir við Rekagranda hófust í ágúst 2023 og náðu fram á veturinn. Þakið er um 49% hallandi með um 40 Velux-gluggum, kvistum og innfelldum svölum, sem gerði skurð á bárujárni og frágang sérlega krefjandi. Nýtt litað bárujárn og pappi voru lögð, gaflar klæddir sléttu áli, þakkantur, rennur og túður endurnýjuð og snjógildrur settar upp. Í kjölfarið voru lekaskemmdir innan íbúða lagfærðar.
Sumarið 2024 var sama lausn útfærð á Seilugranda 1–3, um 900 m² þaki með sama báruefni og lit. Þar voru áfellur við þakglugga endurnýjaðar, þakkantur lagaður og málaður, nýjar rennur settar upp, þaktúður endurnýjaðar og dýranet sett í þakkant.
Um verkið
- Staðsetning: Rekagrandi 6–8 og Seilugrandi 1–3, Reykjavík
- Verktími: ágúst 2023 – sumar 2024
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: Tvö fjölbýlishúsaþök, hvort um 900 m²
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Rif á eldra bárujárni og pappa á brattum þökum (um 49% halli)
- Nýtt litað bárujárn (RAL 1013) og nýr þakpappi
- Frágangur við tugi Velux-þakglugga, kvisti og innfelldar svalir
- Slétt álklæðning á göflum, nýr kjölur, áfellur og snjógildrur
- Endurnýjun þakkants, rennur (150 og 100 mm) og þaktúður
- Viðgerðir á raka- og lekaskemmdum innan íbúða (Rekagrandi)
Efni
- Litað bárujárn RAL 1013
- Þakpappi
- Slétt álklæðning
- Áfellur við Velux-glugga

