Þakskipti á um 1.065 m² þaki fjölbýlishúss í Hafnarfirði – aluzink bára, nýr pappi, rennur, túður og þaklúgur.
Húsfélagið að Breiðvangi 24–28 í Hafnarfirði samdi við Byggingu og Viðhald um heildarendurnýjun á þaki hússins, um 1.065 m². Verksamningur var undirritaður vorið 2024 og verkið unnið síðsumars undir eftirliti óháðs eftirlitsaðila á vegum húsfélagsins.
Gamla þakjárnið og pappinn voru rifin og fargað. Þegar þakið var opnað kom í ljós að hluti þess var ekki heilklæddur og var bætt við borðum þar sem vantaði auk þess sem skipt var um vindskeið á gafli, í samráði við húsfélagið. Síðan var lagður nýr pappi og aluzink bára, og endurnýjaðir kjölur, áfellur, rennur og rennubönd, lofttúður og fjórar þaklúgur.
Þrátt fyrir óvenju vætusamt sumar gekk verkið vel. Eftirlitsaðili mat pappalögn og frágang við rör mjög góðan og verkinu lauk í september 2024.
Um verkið
- Staðsetning: Breiðvangur 24–28, Hafnarfjörður
- Verktími: ágúst–september 2024
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 1.065 m² þak
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Rif og förgun á eldra þakjárni og pappa
- Heilklæðning með 1″ x 6″ borðum þar sem vantaði og ný vindskeið á gafli
- Nýr þakpappi og aluzink bára
- Nýr kjölur, áfellur, skotrenna, rennur og rennubönd
- Nýjar lofttúður og fjórar þaklúgur
- Vinnulyftur, varnir og fullnaðarfrágangur
Efni
- Aluzink bára
- Þakpappi
- Borðaklæðning 1″ x 6″

