Utanhúss viðhald – þök, gluggar, klæðningar og múrviðgerðir
Ytra byrði hússins ver allt sem er innan við það. Þegar þak lekur, gluggar fúna eða klæðning gefur sig verða skemmdirnar fljótt dýrari en viðhaldið sjálft. Við sjáum um allan utanhúss frágang fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu – frá fyrstu skoðun að fullbúnu verki.
Það sem við gerum utanhúss
Húsfélög og fjölbýli
Stór hluti verkefna okkar er fyrir húsfélög. Við gerum skýrt tilboð sem hægt er að leggja fyrir húsfund, skipuleggjum verkið svo íbúar verði fyrir sem minnstu ónæði og höldum stjórn húsfélagsins upplýstri allan tímann.
Hvernig fer verkið fram?
- Skoðun – við komum, metum ástandið og ræðum lausnir.
- Tilboð – skýrt tilboð þar sem fram kemur hvað er innifalið.
- Framkvæmd – verkið unnið samkvæmt gæðakerfi okkar.
- Úttekt og frágangur – við skilum svæðinu hreinu og förum yfir verkið með þér.
Gluggareiknivélin: Skráðu gluggana og hurðirnar, settu inn gróf mál og mynd og fáðu frítt tilboð í allan pakkann – gluggar, hurðir og ísetning, allt á einum stað. Opna Gluggareiknivélina →