Þakreiknivélin

Fáðu tilboð í nýtt þak.

Heimilisfang og símanúmer er allt sem við þurfum. Við mælum þakið út frá loftmyndum og teikningum hússins og sendum þér sundurliðað tilboð – þú þarft ekki að mæla neitt.

Efni, vinna og frágangur – allt á einum stað

10 ára ábyrgð á þakskiptumYfir 154 þök síðan 2020Þú þarft ekki að mæla
Byrja núna – tekur 1 mínútu ↓
Lengd hússins Breidd Heildarflötur (m²) Plöturnar liggja frá þakskeggi upp í kjöl
– m² þak, áætlað
Tvíhalla · meðalhalli

Settu inn lengd og breidd hússins – flatarmálið reiknast um leið.

1Húsið

Hjálpar okkur að meta aðgengi, vinnupalla eða lyftu.

2Þakið

Veldu það sem passar best. Ef þú ert ekki viss dugar „Veit ekki“ – við metum þetta á staðnum.

Þú þarft ekki að mæla – við reiknum stærð þaksins út frá loftmyndum og teikningum hússins.

m
m

Mældu utanmál hússins (grunnflöt). Reiknivélin bætir við þakskeggi og halla. Tölurnar þurfa ekki að vera nákvæmar.

3Nýtt þakefni og litur

Aluzink er stál með ál- og sinkhúð – algengasta þakjárnið á Íslandi. Litað aluzink kemur með verksmiðjuhúð í lit og þarf ekki málningu. Ál ryðgar ekki, er léttara og endist lengst – fæst í fjölda lita.

4Hvað viltu fá á þakið?

Hakaðu við það sem á að fylgja. Allt sem þú velur kemur sundurliðað í tilboðinu.

Endilega sendu myndir af þakgluggunum í skrefi 5.

Lektur eru timburlistar sem við festum ofan á öndunardúkinn – 21×45 mm lektur niður hallann (með sperrunum) og 34×70 mm láréttar lektur sem járnið er skrúfað í. Þannig myndast loftbil svo raki þornar og þakið endist lengur. Við notum þetta á flest þök sem við skiptum um.

Alltaf innifalið í þakskiptum: rif og förgun á gömlu járni og pappa, yfirferð á undirlagi, nýr pappi eða öndunardúkur, lektun þegar hún er valin, nýtt þakjárn, kjöljárn, áfellur og allur frágangur – með 10 ára ábyrgð.

5Myndir af þakinu

Myndir segja okkur mest. Taktu mynd af húsinu frá götu, af þakinu ef þú nærð, af þakgluggum, skorsteini og lekastöðum að innan. Drónamyndir eru frábærar. Allt að 8 myndir.

6Þínar upplýsingar

Við notum þetta eingöngu til að senda þér tilboð og hafa samband vegna verksins.

Algengar spurningar um Þakreiknivélina

Hvernig er flatarmál þaksins reiknað?

Reiknivélin tekur grunnflöt hússins, bætir við um 50 cm þakskeggi á hvora hlið og leiðréttir fyrir halla þaksins. Brattara þak er stærra en grunnflöturinn. Þetta er áætlun – við mælum alltaf sjálf á staðnum.

Ál eða aluzink – hvort er betra?

Ál ryðgar ekki, er léttara og endist lengst við íslenskar aðstæður – það fæst í 24 stöðluðum litum og 11 sérlitum auk fleiri báruforma (micro, stór, stölluð, trölla, trapiza). Aluzink er stál með ál- og sinkhúð, hagkvæmara og algengasta þakjárnið á Íslandi. Við ráðleggjum eftir húsi, halla og fjárhag.

Hver er munurinn á ólituðu og lituðu aluzinki?

Ólitað aluzink er málmgrátt og hagkvæmast. Litað aluzink kemur með verksmiðjuhúð í lit og þarf ekki málningu fyrstu árin. Bæði endast í áratugi ef frágangurinn er réttur.

Er þetta bindandi?

Nei. Þú færð tilboð sem þú getur skoðað í rólegheitum. Ekkert er ákveðið nema þú samþykkir tilboðið.

Vinnið þið fyrir húsfélög?

Já. Við gerum tilboð sem hægt er að leggja fyrir húsfund og skipuleggjum verkið í samráði við stjórn húsfélagsins.

Þakskipti með Bygging og Viðhald

Við skiptum um þök á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum, skólum og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni – yfir 38.500 m² af þökum hingað til. Við rífum gamla járnið og pappann, yfirförum undirlagið, leggjum nýjan pappa eða öndunardúk og nýtt járn og göngum frá kjöl, áfellum og rennum. Á þakskiptum er 10 ára ábyrgð.

Lestu meira um þakskipti og þakviðgerðir, hvað kostar að skipta um þak eða skoðaðu þakverkin okkar.