Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þriðja árið í röð

Eftir september 24, 2026október 20th, 2026Fréttir
Bygging og Viðhald – Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þrjú ár í röð

Bygging og Viðhald ehf. hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni þriðja árið í röð – 2024, 2025 og 2026. Viðurkenningin er aðeins veitt litlum hópi íslenskra fyrirtækja sem sýna traustan og stöðugan rekstur ár eftir ár.

Merki: Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2024–2026, Viðskiptablaðið og Keldan

Hvað þarf til?

Viðskiptablaðið og Keldan fara yfir ársreikninga íslenskra fyrirtækja og velja þau sem uppfylla ströng skilyrði um rekstur og fjárhagslegan styrk. Til að hljóta viðurkenninguna þurfa fyrirtæki meðal annars að:

  • skila jákvæðri afkomu,
  • hafa tekjur umfram 50 milljónir króna,
  • eiga eignir umfram 90 milljónir króna,
  • hafa eiginfjárhlutfall yfir 20%,
  • og skila ársreikningi á réttum tíma.

Árið 2025 var Bygging og Viðhald á meðal aðeins 2,6% íslenskra fyrirtækja sem uppfylltu skilyrðin.

Viðurkenningarskjal: Bygging & Viðhald ehf. Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2025

Hvað þýðir þetta fyrir þig sem viðskiptavin?

Þegar þú ræður verktaka í þakskipti, gluggaskipti eða klæðningu á húsið skiptir máli að fyrirtækið standi traustum fótum. Traustur rekstur þýðir að:

  • við klárum verkið – líka stór verk fyrir húsfélög, fyrirtæki og sveitarfélög,
  • við stöndum við ábyrgðirnar – til dæmis 10 ára ábyrgð á þakskiptum,
  • við getum fjárfest í góðum tækjum, þjálfun og vönduðu efni.

Reynsla og traustur rekstur

Við höfum skipt um 154 þök síðan 2020 – yfir 38.500 m². Skoðaðu fyrri verk eða lestu meira um fyrirtækið.

Nýtt: Bygging og Viðhald er líka Framúrskarandi fyrirtæki 2026 samkvæmt Creditinfo.

Við þökkum starfsfólkinu okkar fyrir frábært starf og viðskiptavinum fyrir traustið.

Ertu að huga að viðhaldi? Fáðu verð í glugga og hurðir í Gluggareiknivélinni eða hafðu samband og fáðu frítt tilboð í þakskipti, klæðningu eða annað viðhald.

Share