Hjarðarhagi 60–64 – Gluggaskipti í fjölbýlishúsi – ljósmynd 1

Skipt um 73 glugga í fjölbýlishúsi í Vesturbæ, í nánu samráði við húsfélag og íbúa.

Húsfélagið á Hjarðarhaga 60–64 í Vesturbæ Reykjavíkur samdi við Byggingu og Viðhald um að skipta um alla glugga hússins, alls 73 glugga í níu stærðum. Gluggarnir voru framleiddir af Gluggatækni eftir mælingum og teikningum sem voru yfirfarnar með húsfélaginu, m.a. til að útfæra aukaopnanleg fög í eldhúsgluggum að óskum íbúa.

Ísetning hófst í desember 2025 og var byrjað á gluggum í stigagöngum. Vinnunni var hagað í samráði við íbúa svo fólk gæti verið heima þegar röðin kom að þeirra íbúð. Eldri gluggum var fargað og nýju gluggarnir felldir í og gengið frá þeim að innan og utan.

Í febrúar 2026 voru allir gluggar komnir í og lokafrágangi lauk í byrjun mars 2026.

Um verkið

  • Staðsetning: Hjarðarhagi 60–64, Reykjavík
  • Verktími: desember 2025–mars 2026
  • Verkkaupi: Húsfélag
  • Umfang: 73 gluggar
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Mælingar og samræming framleiðsluteikninga við framleiðanda og húsfélag
  • Útfærsla opnanlegra faga að óskum íbúa
  • Rif og förgun eldri glugga
  • Ísetning 73 nýrra glugga, byrjað á stigagöngum
  • Frágangur að innan og utan
  • Lyfta, flutningur og förgun

Efni

  • Timburgluggar (Gluggatækni)

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →

Þjónusta sem tengist þessu verkiGluggaskipti og hurðir →  ·  Reikna tilboð í glugga →

Unnum við fyrir þig? Gefðu okkur umsögn á Google →