Sumarhús í Grímsnesi tekið í gegn og stækkað – nýtt eldhús, baðherbergi og innréttingar ásamt viðbyggingu.
Selhóll 2 er sumarhús í Grímsnesi þar sem Bygging og Viðhald annaðist heildarendurbætur á eldra húsi og byggði við það. Verkið var unnið í áföngum frá 2023 til 2025.
Fyrst var húsið tekið í gegn að innan. Nýtt eldhús, baðherbergi og forstofuskápar voru hannaðir og smíðaðir eftir teikningum, gluggar málsettir og endurnýjaðir og gengið frá veggja- og loftaklæðningum. Árið 2024 var hafist handa við viðbyggingu eftir samþykktum teikningum, sem stækkaði húsið og bætti við rými og útsýnisgluggum.
Að verki loknu var húsið myndað í apríl 2025. Útkoman er bjart og vandað sumarhús með stórum pöllum, heitum potti og útsýni yfir Grímsnesið.
Um verkið
- Staðsetning: Selhóll, Grímsnes- og Grafningshreppur
- Verktími: 2023–2025
- Verkkaupi: Einbýlishús / sumarhús
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Endurbætur á eldra sumarhúsi að innan
- Nýtt eldhús, baðherbergi og forstofuskápar eftir teikningum
- Málsetning og endurnýjun glugga
- Viðbygging eftir samþykktum teikningum
- Pallar og frágangur utanhúss

