Um fyrirtækið

Bygging og Viðhald ehf. er fjölskyldurekið fyrirtæki

Bygging og Viðhald ehf. er fjölskyldurekið fyrirtæki sem leggur áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og vönduð vinnubrögð.

Á bak við fyrirtækið stendur samstilltur hópur fólks sem hefur metnað fyrir því að vinna vel og byggja upp traust við viðskiptavini sína.

Við trúum því að góð samskipti, heiðarleiki og ábyrg vinnubrögð séu lykillinn að góðu samstarfi. Þess vegna leggjum við áherslu á að standa við okkar orð, halda viðskiptavinum vel upplýstum og skila af okkur verki sem við getum verið stolt af.

Sem fjölskyldufyrirtæki leggjum við mikla áherslu á að byggja upp traust og góð tengsl við viðskiptavini okkar og nálgumst hvert verkefni af ábyrgð og metnaði.

Bygging og Viðhald í tölum

  • Starfandi síðan 2020.
  • Yfir 38.500 m² af þökum sem við höfum lagfært eða lagt nýtt.
  • Yfir 500 verkefni fyrir heimili, húsfélög, fyrirtæki og opinbera aðila.
  • 30 starfsmenn með reynslu úr öllum helstu greinum viðhalds.

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2024–2026

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2024–2026, Viðskiptablaðið og Keldan

Bygging og Viðhald hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri af Viðskiptablaðinu og Keldunni þrjú ár í röð – 2024, 2025 og 2026. Árið 2025 vorum við á meðal aðeins 2,6% íslenskra fyrirtækja sem uppfylltu skilyrðin. Það þýðir traustan rekstur og að þú getur treyst því að við klárum verkið.

Hvað við gerum

Við sjáum um viðhald og endurbætur fasteigna á höfuðborgarsvæðinu – þakskipti og þakviðgerðir, gluggaskipti, klæðningar, múrviðgerðir, steinsögun, jarðvinnu og innanhússfrágang. Skoðaðu fyrri verk til að sjá dæmi, eða lestu meira um okkur sem smiði og verktaka fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki.

Gæði og ábyrgð

Öll verk eru unnin samkvæmt gæðakerfi okkar, með skýru ferli frá tilboði að úttekt. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð.

Hafðu samband og fáðu frítt tilboð →